Íslendingar hlutu tvö gull, tvö silfur og eitt brons á Norðurlandamóti alþjóðsambands líkamsræktarmanna um helgina. Magnús Bess Júlíusson og Kristján Samúelsson urðu norðurlandameistarar í sínum flokkum en Magnús keppti í undir 100 kg flokki í vaxtarrækt og Kristján í fitness.
Úrslitin í vaxtarræktarflokkunum
Ekki þarf að fjölyrða um árangur Magnúsar Bess í vaxtarrækt hérlendis. Enginn hefur unnið fleiri Íslandsmeistaratitla, né náð að hafa tærnar þar sem hann hefur haft hælana undanfarna tvo áratugi í þessari íþróttagrein. Undanfarin tvö ár hefur Magnús verið að keppa erlendis á alþjóðlegum mótum með góðum árangri og var því afar kærkomið að hann skyldi verða norðurlandameistari á heimavelli.
Þór Harðarson fékk silfur í undir 100 kg flokki og hafði betur í erfiðri keppni við Erik Fossland meistara frá Noregi sem hafnaði í þriðja sæti.
Í undir 80 kg flokki í vaxtarrækt sigraði Martin Engstrøm frá Noregi, annar varð Sauli Aitto-oja frá Finnlandi og Ali Tabra frá Noregi varð þriðji. Okkar maður, Sæmundur Hildimundarson hafnaði í fimmta sæti. Sæmundur var í góðu formi og mætti vel undirbúinn. Meistararnir frá nágrannalöndunum okkar áttu hinsvegar betri dag að þessu sinni.
Ott Kiivikas frá Eistlandi sigraði í undir 90 kg flokki. Hann var þar í sérflokki og átti tvímælalaust fyrsta sætið, enda þrautreyndur meistari sem er duglegur að keppa á alþjóðlegum mótum. Annar varð Amir Riazifard frá Noregi og þriðji Rene Olesen frá Danmörku.
Alls kepptu sjö keppendur í svonefndum öldungaflokki karla í vaxtarrækt – en þeir eru 40 ára eða eldri. Øyvind Fjeldseth frá Noregi sigraði, Petri Raatikainen frá Finnlandi varð annar og Knut Øines varð þriðji. Okkar menn í þessum keppnisflokki voru þeir Smári Harðarson og Guðmundur Bragason. Smári hafnaði í fimmta sæti og Guðmundur í því sjöunda.
Stóru strákarnir í yfir 100 kg flokknum áttu sviðið í Háskólabíói. Þakið ætlaði af húsinu í látunum, en það var Kim Torgersen frá Noregi sem hlaut gullið. Hinn danski Thomas Davidsen varð annar og Sami Jääskeläinen frá Finnlandi þriðji. Eftir að úrslit í öllum vaxtarræktarflokkunum lágu fyrir hófst leitin að heildarsigurvegaranum í vaxtarrækt. Mættu þar allir sigurvegararnir úr öllum flokkunum á svið og varð strax ljóst að keppnin um þennan stærsta titil yrði mjög jöfn. Fór svo að einungis munaði einu stigi á Kim Torgersen frá Noregi og Ott Kiivikas frá Eistlandi hinum norska Kim í hag. Okkar maður Magnús Bess Júlíusson varð þriðji í heildarkeppninni sem er árangur framar vonum.
Úrslit
Heildarsigurvegari karla1. Kim Torgersen Noregur |
||
Vaxtarrækt karla -80 kg1 Martin Engstrøm Noregur |
Vaxtarrækt karla -90 kg1 Ott Kiivikas Estonia |
Vaxtarrækt karla -1001 Magnús Bess Júlíusson Iceland |
Vaxtarrækt kvenna1 Mona Cristin Jacobsen Noregur2 Madelen Hermanson Svíþjóð |
Vaxtarrækt karla 40 ára +1 Øyvind Fjeldseth Noregur2 Petri Raatikainen Finnland 3 Knut Øines Noregur 4 Jari Laine Finnland 5 Smári Harðarson Iceland 6 Christer Rehnman Svíþjóð 7 Guðmundur Bragason Iceland |
Vaxtarrækt karla +1001 Kim Torgersen Noregur |
MYNDIR FRÁ MÓTINU
Myndirnar eru ýmist í einkaeigu eða fengnar að láni af fitness.is, iform.no og treningsforum.no
|

